Högna Heiðbjört Jónsdóttir (f. 1997) býr og starfar í Kaupmannahöfn.
Hún stundaði myndlistarnám við Gerrit Rietveld Academie og útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands.
Högna fæst fyrst og fremst við málverkið og nýtir sér ýmist innsæið og/eða kerfisbundnar aðferðir við gerð málverkanna.
Söfnun, uppröðun og ákvarðanataka einkennir nýlegri verk hennar í bland við notkun sterkra lita sem verka hvern á annan.
Aðdráttarafl í hversdagslega hluti og fegurð sem felur sig í amstri dagsins sýnir hún í framlögðum verkum sínum, með því að
setja kunnuglega hluti í nýjan búning og/eða nýtt samhengi vekur hún athygli á hlutum sem flestir yfirsjást.
ljósmynd eftir ástrós önnu klemensdóttur
© 2024 högna heiðbjört jónsdóttir