Högna Heiðbjört Jónsdóttir (f. 1997) býr og starfar í Kaupmannahöfn. Hún stundaði myndlistarnám
við Gerrit Rietveld Academie og útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands.
Högna fæst fyrst og fremst við málverkið og nýtir sér ýmist innsæið
og/eða kerfisbundnar aðferðir við gerð málverkanna. Söfnun, uppröðun og ákvarðanataka einkennir
nýlegri verk hennar í bland við notkun sterkra lita sem verka hvern á annan.
Aðdráttarafl í hversdagslega hluti og fegurð sem felur sig í amstri dagsins sýnir hún í framlögðum verkum sínum,
með því að setja kunnuglega hluti í nýjan búning og/eða nýtt samhengi vekur hún athygli á hlutum sem flestir yfirsjást.